Sala á Neyðarkalli Björgunarsveitanna hafin
Í gær fimmtudag, hleyptu Forseti Íslands, hr. Guðni TH. Jóhannesson og forsetafrúin Eliza Reid, sölu Neyðarkalls Björgunarsveitanna af stað með formlegum hætti. Forsetinn og Eliza Reid tóku við stórum Neyðarkalli við færanlega stjórnstöð björgunarsveita á SV horninu, við Perluna í gær.
Neyðarkall 2023 er aðgerðastjórnandi og aðgerðastjórnandinn Karen Lárusdóttir, sem einnig er glettilega lík Neyðarkalli 2023, útskýrði hlutverk aðgerðastjórnanda fyrir forsetanum og sýndi honum inn í stjórnstöðina og hvernig aðgerðir eru skipulagðar og stýrt.
Neyðarkall björgunarsveitanna er ein af stóru fjáröflunum björgunarsveitanna og fram á sunnudag má búast við björgunarsveitafólki annað hvort knýja dyra eða bjóða Neyðarkall til sölu við verslunarmiðstöðvar til að mynda.
Það er von þeirra að landsmenn taki nú sem endranær vel á móti sjálfboðaliðum okkar og sjái sér fært að styrkja björgunarsveitir landsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.