Kokkakeppni Árskóla endurvakin

Á heimasíðu Árskóla segir að ákveðið hafi verið að endurvekja hina skemmtilegu hefð sem Kokkakeppni 10. bekkjar Árskóla er eftir nokkurra ára hlé. Þar sem hópurinn í heimilisfræði er tvískiptur verður ein keppni á haustönn og önnur á vorönn. Keppni haustannarinnar var haldin 16. nóvember sl. og voru fjögur lið sem kepptu að þessu sinni. 

Krakkarnir lögðu mikinn metnað í keppnina, fundu uppskriftirnar sjálf, sum betrumbættu þær og breyttu, en þau fengu einn undirbúningstíma til að elda og stilla réttinum upp á matardisk. Dómarar að þessu sinni voru Eiður Baldursson, Sandra Björk Jónsdóttir og Gestur Sigurjónsson. Dæmt var fyrir bragð og útlit/framsetningu réttanna. 

Liðin voru eftirfarandi:
Alia, Jo og Birkir voru með Hunangsmareneraðan lax, hrísgrjón og salat.
Aron og Unnur með Kjúklingabringu í appelsínusósu með hrísgrjónum.
Heiðdís og Katelyn með Kjúklingabringu í chili sósu með hrísgrjónum.
Kári og Steini með BBQ kjúklingabringu með Heimbuch kartöflu og léttsteiktu grænmeti. 

Keppnin var mjög jöfn en gefin voru verðlaun fyrir tvö efstu sætin. Í öðru sæti voru Heiðdís og Katelyn og fengu þær gjafabréf í Gránu upp á kakó og köku. Í fyrsta sæti voru Alia, Jo og Birkir og fengu þau gjafabréf út að borða á Sauðá.

Krakkarnir stóðu sig öll alveg gríðarlega vel og eiga mikið hrós skilið. Að lokum fengu allir keppendur svuntur sérmerktar keppninni til að eiga til minningar sem verður gott fyrir þau að nota þegar þau elda næsta snilldar rétt í eldhúsinu. Myndirnar tók Elenóra Jónsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir