Jólablað Feykis 2023 er komið út

Forsíða Jólafeykis í ár er mynd tekin af Einari Gíslasyni í Brekkutúninu á Króknum. Myndin er tekin inn Skagfirðingabrautina á fallegu haustkveldi.
Forsíða Jólafeykis í ár er mynd tekin af Einari Gíslasyni í Brekkutúninu á Króknum. Myndin er tekin inn Skagfirðingabrautina á fallegu haustkveldi.

Í gær var útgáfudagur Jólablaðs Feykis og í gær og næstu daga ættu áskrifendur og allir íbúar á Norðurlandi vestra að fá hressilegt blað inn um bréfalúguna. JólaFeykir er 40 síður að þessu sinni, stútfullt af fjölbreyttu efni og auglýsingum. Það er nú þegar komið á netið þannig að þeir sem ekki geta setið á sér geta stolist í það strax.

Samkvæmt óskráðum reglum er kökuþáttur í miðopnu og þar kennir fjölbreyttra kaka hjá dömunum í saumaklúbbnum síunga frá Skagaströnd. Jóndís Hinriksdóttir er í myndaþættinum, spjallað er við Ölmu Lilju Ævarsdóttir sem var með kransanámskeið á vegum Farskólans í haust og svo svara nokkrir einstaklingar spurningum í þættinum Jólin mín. Leikskólabörn frá Birkilundi í Varmahlíð svara nokkrum laufléttum og að sjálfsöðgu er hin ómissandi jólamyndagáta á sínum stað ásamt fullt af öðru efni sem ætti að vera lesendum til skemmtunar. 

Vonandi á JólaFeykir eftir að kæta lesendur og koma fólki í örlítinn jólagír nú í upphafi aðventunnar. Góðar stundir!

Smellið hér >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir