Hélduð þið að þeir væru hættir ?
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
19.09.2023
kl. 22.50
Í tilkynningu á Facebooksíðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að samið hafi verið við Stephen Domingo 28 ára. Hann er framherji af amerískum og nígerískum ættum. Stephen Domingo var fyrirliði nígerska landsliðsins og var í U17 USA landsliðinu sem varð heimsmeistari 2012.
Hann hefur spilað í Hollandi og í G league sem er varadeild NBA.
Stephen Domingo verður flott viðbót í glæsilegan leikmannahóp. Tindastólsfólk bíður hann að sjálfsögðu hjartanlega velkominn í Skagafjörðinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.