Friðrik Már ráðinn til RML

Friðrik Már Sigurðsson. Mynd tekin af RML.is
Friðrik Már Sigurðsson. Mynd tekin af RML.is

Á vef RML segir að Friðrik Már Sigurðsson hafi verið ráðinn til starfa. Friðrik mun starfa sem fagstjóri á búfjárræktar- og þjónustusviði. Hann verður í hlutastarfi nú í nóvember og desember en verður í 100% starfi frá og með janúar 2024. Aðalstarfsstöð hans verður á Hvammstanga.

Friðrik hefur háskólamenntun á sviði búvísinda og er með MPM í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Friðrik hefur víðtæka þekkingu á starfsumhverfi bænda. Hann er með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, m.a. úr kennslu, stjórnsýslu, verkefnastjórnun og ráðgjöf.

RML býður Friðriki velkominn til starfa. Á starfsstöðinni á Hvammstanga starfar ásamt Friðriki, Sigríður Ólafsdóttir ráðunautur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir