Emelíana Lillý sigraði
Þann 6. desember var söngkeppni FNV haldin líkt og undanfarin ár, til þess að skera úr um hver fer fyrir hönd skólans í stóru Söngkeppni framhaldsskólanna 2024.
Emelíana Lillý söng lagið Never enough með miklum glæsibrag og sigraði keppnina og fer því fyrir hönd skólans í stóru söngkeppnina. Í öðru sæti var Heiðmar Gunnarsson með lagið Broken eftir Ísak Danielsson, en Heiðmar sigraði einmitt undankeppnina í fyrra og í því þriðja höfnuðu þeir bræður Jóel og Ísak Agnarssynir með lagið Fallegur Dagur. Í dómnefnd voru þau Íris Olga Lúðvíksdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson og Ingi Sigþór Gunnarsson og þeirra hlutverk ekki öfundsvert að þurfa að velja úr öllum þessum hæfileikum sem í þessari keppni voru.
Feykir óskar Lillý innilega til hamingju með sigurinn og ykkur öllum sem tókuð þátt.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.