Brúarlokun heim að Hólum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
17.11.2023
kl. 13.07
Frá og með þriðjudeginum 21. nóvember verður brúarlokun á Hólavegi (767).
Vegagerðin tilkynnti í dag að vegna viðhaldsframkvæmda verður brú yfir Hjaltadalsá við Laufskála lokuð frá nóvember til febrúar. Vegfarendum er vísað á hjáleið um Ásaveg (769). Lokunin tekur gildi frá og með þriðjudeginum 21. nóvember og áætlað er að lokunin muni standa yfir fram í miðjan febrúar 2024.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.