Tortillas lasange og alvöru skyrkaka
Þessa vikuna eru það Axel Eyjólfsson og Ósk Bjarnadóttir á Sauðárkróki sem bjóða upp á gómsæta rétti. Tortillas lasange með nautahakki og ostasósu og alvöru skyrkaka í eftirrétt.
Tortillas lasange með nautahakki og ostasósu
Uppskrift fyrir fimm
- 450gr. nautahakk
- 5 stk Tortilla 10“
- 2 ½ dl. taco sósa, mild eða hot eftir smekk
- ½ dl. tómatpúrra
- 2 laukar
- Lítil dós gular baunir
- 1 paprika
- 1 tsk. salt
- 1 msk. hvítlaukur
- 25gr. matarolía til steikingar
Ostasósa
- 10 gr. smjör
- 1 msk. hveiti
- 2 ½ dl. upphituð mjólk
- 2-3 dl. tilbúin ostasósa
Steikið lauk , gular baunir , papriku, nautahakk og tómatpúrru í matarolíu. Bætið við tacosósu, salti og hvítlauk. Steikið í u.þ.b. 3 mínútur. Hitið smjörið í potti og blandið saman við hveiti. Hrærið mjólkinni saman við og látið malla við vægan hita í u.þ.b. 3 mínútur. Blandið nú við ostasósunni og bragðbætið með salti. Hellið þunnu lagi af ostasósu í eldfast mót. Setjið á víxl tortillur, kjöt og ostasósu. Hafið seinasta lagið með ostasósu. Skreytið með tómatsneiðum og rifum osti. Hitið í ofni í 15 mínútur, við 200°C. Berið fram með salati og hvítlauksbrauði.
Eftirréttur
Alvöru skyrkaka
Hráefni:
- 1 pakki kanilkex frá Lu, mulið (Bastogne)
- 80 g brætt smjör
- 5 dl rjómi, þeyttur
- 500 g KEA vanilluskyr
- 3 msk. bláberjasulta
- 150 g bláber
- 200 g jarðarber
Aðferð:
Blandið kexmylsnunni og smjörinu saman og þrýstið á botninn á vel smurðu smelluformi. Hrærið rjómann varlega saman við vanilluskyrið og hellið ofan á kexbotninn. Setjið bláberjasultuna gætilega ofan á, ásamt bláberjum og jarðarberjum sem hafa verið skorin í bita. Það er í góðu lagi að útbúa skyrtertuna daginn áður, en hún þarf allavega að standa í kæli í 3-4 klukkustundir áður en hún er borin fram.
Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.