Parmaskinkuvafinn humar
Sólveig Bergland Fjólmundsdóttir og Rúnar S. Símonarson láta okkur hafa einstaklega girnilegar uppskriftir að þessu sinni. Sólveig og Rúnar voru matgæðingar Feykis í 45. tbl. árið 2008 og skoruðu þau á þau Nönnu Andreu Jónsdóttur og Guðmund Kr. Hermundssson Víðihlíð 5 Sauðárkróki, að koma með næstu uppskriftir.
Parmaskinkuvafinn humar.
Forréttur fyrir fjóra.
Hráefni:
- 8 stk. humarhalar (skellausir og hreinsaðir)
- 4 sneiðar Parmaskinka, skornar í tvennt.
- Salt og pipar
- Ólífuolía
- 8 sneiðar steikt brauð
- Salat
- Pestó, eftir smekk
Aðferð:
Hreinsið humarinn. Vefjið parmaskinkunni utan um og steikið upp úr ólífuolíunni í c.a. 1 mín. á hvorri hlið. Saltið og piprið. Berið fram með stökku brauði, salati og pestói.
Nomu-lamb.
Þarf að undirbúa daginn áður. Lambalæri er sett í ofnpott. Ríflega 2 msk. af Nomu- Lamb rub kryddi er blandað saman við c.a. 0,5 dl. ólívuolíu og penslað yfir lærið. Látið bíða yfir nótt. Skerið niður 2 lauka í grófa báta og raðið meðfram lærinu í pottinum. Hellið bolla af vatni og bolla af rauðvíni yfir laukinn og stráið 0,5-1 msk. af Nomu- Lamb rub yfir. Látið lokaðan pottinn í kaldan ofn, stillið á 200°C og steikið í 1,5 klst. Takið lokið af og steikið áfram í 15-20 mín. Takið soðið úr pottinum, sigtið í sósupott og bætið við rauðvíni og rjóma eftir smekk. Þykkið með sósujafnara ef þarf. Gott er að bragðbæta sósuna með rifsberjageli.
Fylltar kartöflur með beikoni.
Fyrir fjóra.
Hráefni:
- 4 stk. bökunarkartöflur (foreldaðar)
- 100 g. beikon
- 1 hvítlauksrif
- 1 búnt steinselja, saxað
- Salt og pipar
- Ögn saxaður chili
Aðferð:
Steikið beikonið og saxið smátt. Takið bökuðu kartöflurnar í tvennt, hreinsið innan úr þeim með skeið og setjið í skál. Passið að skemma ekki hýðið. Stappið innihaldið saman með stökku beikoni, hvítlauk, saxaðri steinselju, salti og pipar og ögn af chili. Fyllið hýðið, setjið kartöflurnar saman aftur, vefjið í álpappír og bakið í ofni. Borið fram með sýrðum rjóma.
Súper einföld súkkulaðimús.
Fyrir 4-6
Hráefni:
- 200 g. rjómi
- 200 g. súkkulaði
- 300 ml. léttþeyttur rjómi
Aðferð:
Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði, æskilegt hitastig á súkkulaðinu er um 40-45°C. Volgum rjóma bætt í súkkulaðið í smáum skömmtum og hrært hratt um leið. Léttþeytta rjómanum bætt varlega í. Borið fram í glösum eða í súkkulaðiskálum. Skreytt eftir smekk, t.d. með berjum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.