Mjög góður og sterkur kjúklingaréttur
Ragnheiður Skaptadóttir og Ólafur Guðmundsson á Sauðárkróki buðu upp á gómsætan humar í forrétt, kjúlla í aðalrétt og kókosbollugums í eftirrétt í 12.tbl. Feykis árið 2009.
Hvítlauksristaður humar
- 24 stk. humar í skel, frekar stórir halar sem skornir eru eftir endilöngu og skítaröndin fjarlægð.
- Ca 8 stk hvítlauksrif
- 300 gr af hvítu brauði
- Dass af saxaðri steinselju
- Smjör, brætt
- Salt og pipar
- Brauð
Humrinum er raðað í ofnskúffu með opnu hliðina upp. Brauð, hvítlaukur og steinselja sett í matvinnsluvél og mixað saman, kryddað eftir smekk. Blöndunni dreift í þéttu lagi yfir humarinn í ofnskúffunni. Bræddu smjöri dreypt yfir allt saman. Bakið í ofni við háan yfirhita í nokkrar mínútur eða þar til brauðið ofan á hefur fengið gylltan lit. Borið fram með léttristuðu brauði, smjörva og salati.
Karrý kjúklingur
Mjög góður og sterkur kjúklingaréttur..
- 4 kjúklingabringur
- 1peli rjómi
Kryddlögur:
- 3dl tómatsósa
- 3tsk karrý
- 3tsk pipar
- 1 tsk salt
Kjúklingurinn er skorinn í bita og þeir steiktir á pönnu. Kryddlögurinn er blandaður og skellt út á pönnuna þegar kjúklingurinn er orðinn svo til steiktur. Þá er rjómanum hellt yfir og leyft að malla á pönnunni í rétt um 20 mínútur eða svo. Kjúklingurinn er borinn fram með hrísgrjónum, salati og frönskum. Klikkar ekki!
Kókosbollugums
- Einn bakki með blöndu af kókosbollu, borgurum og buffi (súkkulaði með kremi og rúsínum/hrísi inn í).
- Einn peli rjómi
- Fullt af ávöxtum (um að gera að nota hugmyndaflugið og hafa sem fjölbreyttast)
- Súkkulaðispænir.
Kókosbollurnar og „það“ er skorið í helminga og skellt á botninn á eldföstu móti. Rjóminn þeyttur og skellt þar ofan á. Svo er bara að skera ávextina í munnstærðar bita og dreift yfir rjómann. Þar að lokum er svo súkkulaðispæni stráð yfir allt saman og geymt inn í kæli á meðan verið er að borða aðalréttinn.
Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.