Matgæðingar vikunnar - Sinnepslúða með sítrónu

Í 35. tbl Feykis árið 2008 buðu matgæðingarnir Eva Gunnarsdóttir og Guðjón Jónsson frá Sturluhóli upp á gómsætan lúðurétt með tilheyrandi forréttarsúpu og eftirrétt sem bráðnar í munni. Þau skoruðu á Hafþór Gylfason og Sigþrúði Magnúsdóttur Sunnuvegi 11 Skagaströnd að koma með uppskrift að tveimur vikum liðnum.

 

 

Forréttur: Sterk fiskisúpa f. 6.

 

  • 100 g smjör,
  • 1 msk grænt karrý mauk,
  • 1 msk rautt karrý mauk,
  • 2 msk hveiti,
  • 1 1/2 l fiskisoð,
  • 2-3 gulrætur,
  • 3 rauðar paprikur,
  • 2 stönglar af sellerí,
  • 2 rauðir chilli belgir,
  • Estragon eftir smekk,
  • 1 lítil dós af tómat puré,
  • 1/4 l rjómi,
  • 500-600 g fiskur að eigin vali.

 

Paprikur, gulrætur, sellerí og chilli er skorið niður og svitað í smjörinu og karrýmaukinu á pönnu. Hveiti er bætt saman við og fisksoðinu hellt rólega saman við. Estragoni og tómatpuré bætt út í ásamt rjómanum og að lokum er fiskbitunum bætt út í. Súpan er borin fram með góðu brauði.

 

Aðalréttur: Sinnepslúða með sítrónu f. 4

  • 1 kg lúðuflök eða heil lúða,
  • 1 sítróna,
  • 1/2 stór krukka af Dijon sinnepi,
  • Salt og pipar eftir smekk,
  • 500 g smjör.

 

Sítrónan er skorin í þunnar sneiðar og sett í pott ásamt smjörinu og sinnepinu. Hrært vel í á meðan. Lúðuflökin/lúðan eru sett í eldfast mót og sósunni hellt yfir. Steikt í c.a 20 mín. við 180° C. Borið fram með nýjum kartöflum eða grjónum og einföldu salati.

 

Eftirréttur: Súkkulaðimús f. 4.

  • 4 eggjahvítur,
  • 200 g sykur,
  • 200 g súkkulaði (70%),
  • 1 peli rjómi,
  • Jarðarber.

Eggjahvíturnar og sykur eru stífþeytt saman. Súkkulaði brætt í vatnsbaði og hrært saman við sykurinn og eggjahvíturnar. Rjóminn er þeyttur og svo eru þessu blandað varlega saman (þannig að músin líti út eins og marmari). Sett í glös eða skálar. Látið standa í ísskáp í 1-2 klst. Skreytt með jarðarberjum.

 

Verði ykkur að góðu!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir