Léttir réttir
Þau Kristín Lárusdóttir og Gunnar Ólafsson á Blönduósi voru með uppskriftir vikunnar í Feyki í febrúar 2008 og buðu upp á létta rétti sem efalaust kæta bragðlaukana.
Gott salat í afmæli eða saumaklúbbinn
- 1 bréf spægipylsa
- 1 stór rauðlaukur
- 1 blaðlaukur
- 4 tómatar
- 1 gúrka
- 1 græn paprika
- 1 rauð paprika
- 1 piparostur
- 1 paprikuostur
Skreyta með kínakáli, harðsoðnum eggjum og graslauk. Allt skorið smátt saman. Gott að bera fram með ristuðu brauði og kaldri sinnepssósu
Létt Sinnepssósa
- 2 dl. súrmjólk
- 1 tsk. sinnep
- 1 msk. graslaukur
- 1/4 tsk. salt
- pipar
Hrærið saman súrmjólk og sinnepi og kryddið með graslauk, salti og pipar. Látið standa í dálítinn tími í kæli áður en það er borið fram.
Rosagott kjúklingapasta
- 5 dl. soðnar pastaskrúfur
- 2 dl. maís úr dós
- 1 grillaður kjúklingur (eða 4-6 eldaðar kjúklingabringur)
- 200 gr. léttsoðið spergilkál
- ½ saxaður blaðlaukur
- 1 dós Campbells kjúklingasúpa
- 1 msk. tómatkraftur
- 1 pressaður hvítlauksgeiri
- 1 dl. rjómi (má vera matreiðslurjómi)
- 150 gr. rifinn óðalostur
- 4 msk. parmesanostur
Aðferð:
Smyrjið eldfast mót og setjið pastaskrúfurnar í mótið. Dreifið maísnum, skerið kjötið smátt og dreifið yfir. Setjið spergilkálið ofan á og dreifið blaðlauknum. Blandið saman súpu, tómatkraft hvítlauk og rjóma. Hellið því síðan yfir. Rífið ostinn og blandið parmesan saman við og stráið yfir. Bakið í 15-20 mínútur við 200 gráður.
Geggjuð ostakaka
Botn:
- 300 gr. makkarónukökur
- 150 gr. smjör
Makkarónukökurnar eru muldar niður og smjörið brætt. Þessu er blandað saman og sett í botninn á kökumóti eða eldföstu móti. Kælt aðeins.
Fylling:
- 300 gr. rjómaostur
- 150 gr. flórsykur
- ½ l rjómi
Rjóminn er þeyttur. Rjómaosturinn og flórsykurinn þeytt saman og blandað varlega saman við þeytta rjómann. Þetta sett ofan á botninn. Kælt eða fryst.
Ofan á:
- 200 gr. suðusúkkulaði
- 1 dós sýrður rjómi
Brætt saman og sett yfir kalda eða frosna kökuna. Gott að setja fersk jarðaber eða bláber ofan á.
Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.