Hrefnukjöt í soyjasósu og Teiryaki-fiskréttur
feykir.is
Í matinn er þetta helst
06.10.2012
kl. 12.05
Það eru hrossaræktendurnir og tamningafólkið á Efri-Mýrum þau Sandra Maria Marin og Ragnar Stefánsson sem koma með ljúffengar uppskriftir að þessu sinni. Þau sækja hráefnið í hafið og bjóða upp á hrefnukjöt og ýsu sem eru tilreidd á snyrtilegan hátt.
Hrefnuforréttur
Kryddlegið hrefnukjöt í soyjasósu, hunangi og balsamediki.
Látið liggja í þrjá tíma og snöggsteikið svo á grillpönnu.
Mauk:
- Rauðlaukur steiktur í olíu
- 2 msk hunang
Balsamedik (t.d. Fattorie Giacobazzi-Balsamix) Soðið saman í mauk, kjötið skorið niður og borið fram með snittubrauði.
Teiryaki-fiskréttur fyrir 4
- 2 ýsuflök, skorin niður
- 3 bollar soðin hrísgrjón
- 1,5 dl teriyakisósa (Kikkoman)
- Rifin hvítlaukur
- 1 dós af kotasælu
- 1 dós af sveppum
- 1 dós af maís
- Sett saman í eldfast mót. Rjómi og rifinn ostur settur yfir.
- Bakið í ofni 180 þangað til að osturinn er gylltur.
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.