Gómsæt önd í appelsínusósu í aðalrétt
Það voru hjónin Guðmundur Kristján Hermundsson og Nanna Andrea Jónsdóttir á Sauðárkróki sem buðu upp á nokkrar girnilegar uppskriftir í árslok 2008. Þau skoruðu á hjónakornin á Narfastöðum þau Rósu Maríu Vésteinsdóttur og Berg Gunnarsson að koma með næstu uppskrift úr Skagafirði.
Forréttur.
Skelfisksúpa ilmandi af karrý og kókos fyrir 6
- 1 l vatn
- 1 dl hvítvín (mysa)
- 1/3 lítill blaðlaukur (græni hlutinn)
- 1 stk gulrót
- 1 msk tómatmauk
- 1 stk sellerístilkur
- 1 stk hvítlauksgeiri
- 1 ½ tsk Madras karrýduft
- 2 stk fiskteningar ( Knorr)
- 4 stk súputeningar ( Maggi)
- 2 dl rjómi
- 1 dós kókosmjólk (4 dl )
- salt og pipar
Smjörbolla
50 g smjörlíki
- 50 g hveiti
Fiskur
- 100 g skelflettur humar
- 100 g rækjur
- 100 g hörpuskel
Grænmeti í súpu
- ½ stk rauð paprika í teningum
- ½ búnt söxuð steinselja
Aðferð
Grófsaxið grænmetið og steikið í olíu ásamt karrýinu og tómatmauki. Bætið í vatni og hvítvíni (eða mysu) ásamt teningum og hvítlauk. Látið sjóða í 15 mín. Sigtið og bakið upp með smjörlíki og hveiti. Bætið kókosmjólkinni í og bragðbætið með salti og pipar. Setjið rjómann í ásamt fisknum, paprikunni og steinseljunni. Látið sjóða í 2-3 mín. Berið fram strax þannig að fiskurinn ofsjóði ekki í súpunni. Sem meðlæti er gott að hafa snittubrauð með hvítlaukssmjöri.
Aðalréttur.
Önd í appelsínusósu með ávaxtasalati
- Önd (um 3 ½ kg)
- salt og pipar
- 400 g súr græn epli
- 50 g þurrkaðar aprikósur
- 2 greinar timjan
- ½ l vatn
- 2-3 tsk andarkraftur (ef þarf )
- sósujafnari
- Grand Mariner
Ávaxtasalat
Blandaðir ávextir t.d
- 1 stjörnuávöxtur
- 2 fíkjur
- 1 passionávöxtur
- eða aðrir framandi ávextir
- 2 dl appelsínulíkjör
- 100 g ósaltaðar
- pistasíuhnetur
Aðferð
Önd: Hreinsið öndina vel að innan og þerrið með eldhúspappír. Nuddið hana vel með salti og pipar. Afhýðið epli fjarlægið kjarna og skerið í báta. Fyllið öndina með eplabátum og aprikósum ásamt grófsöxuðu timjani. Bindið lappirnar saman og setjið öndina á ofngrind með bringuna niður og hafið ofnskúffu undir. Steikið í 250°C heitum ofni í 15 mínútur og snúið henni við. Lækkið hitann í 160°C og steikið áfram í 15 mínútur. Hellið vatni í ofnskúffuna og steikið áfram í 1 ½ klukkutíma. Bætið við vatni ef þörf krefur.
Sósa: Takið öndina úr ofninum og haldið henni heitri. Hellið soðinu í pott og kælið. Fleytið feytinni ofan af. Hleypið upp suðu og bætið 2-3 teskeiðum af andarkrafti út í ef þið viljið. Kryddið með salt og pipar. Þykkið með sósujafnara og bragðbætið með appelsínulíkjör, ef vill.
Ávaxtasalat: Skerið ávextina í sneiðar. Raðið sneiðunum til skiptis á fat. Dreypið líkjör á og dreifið söxuðum pistasíuhnetum yfir. Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í tvo klukkutíma. Berið fram kalt eða setjið í heitan ofn í 10-15 mínútur.
Meðlæti: Berið fram með sykurgljáðum kartöflum. Með öndinni er hægt að hafa flestar tegundir framandi ávaxta sem fást hverju sinni.
Eftirréttur:
- Súkkulaðimús (einföld og létt)
- 2 dl rjómi
- 300 g suðusúkkulaði
- 100 g sykur
- 4 stk egg
- 2 dl rjómi
Hitið rjómann að suðu og hellið yfir saxað súkkulaðið. Þeytið egg og sykur á meðan. Þeytið 2 dl af rjóma, blandið eggjunum saman við rjómann og svo súkkulaðinu. Hrærið mjög varlega með sleikju, setjið í glös eða skál. Kælið í ca. 3 tíma.
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.