Beikonvafinn skötuselur, fiskisúpa og grillaðar kókosbollur
-Aðalrétturinn er í miklu uppáhaldi í fjölskyldunni og hann er borinn fram bæði sem forréttur eða aðalréttur allt eftir því hvernig legið hefur á okkur, segja matgæðingar vikunnar þau Álfhildur R Halldórsdóttir og Valbjörn Steingrímsson á Blönduósi en þau bjóða upp á beikonvafinn skötusel, fiskisúpu og grillaðar kókosbollur.
Aðalréttur
Beikonvafinn skötuselur grillaður á teini með engifer-beikonsósu
- 800 gr skötuselur
- Beikonsneiðar
- Meðlæti
- Soðin hrísgrjón og engifer-beikon sósa
- Ferskt salat eftir smekk.
Engifer beikon sósa
- 1. laukur smátt saxaður
- 6 beikonsneiðar smátt saxaðar
- 2 msk. þurrkað engifer
- 2 dl. hvítvín
- 2 dl. rjómi
- 2 msk. Smjör
- Sósujafnari
Aðferð
Skötuselurinn er skorinn í bita c.a. 6 cm og hver biti er vafinn með beikoni og síðan er þrætt á grillpinna.
Hrísgrjónin soðin.
Sósa: Steikja beikon og lauk smá stund í smjöri, bæta engifer út í og látið steikjast áfram í c.a. 4 mín. Hellið hvítvíninu saman við, sjóðið í aðrar 4 mín, bætið þá rjómanum saman við og látið enn sjóða í smá stund þykkið ef þurfa þykir með sósujafnara og bragðbætið með salti og pipar.
Skötuselurinn: Hann er grillaður við vægan (medium) hita á útigrillinu í c.a. 6 mín. á hvorri hlið. Mikilvægt að víkja ekki frá grillinu á meðan svo hann verði ekki ofeldaður.
Fiskisúpa með grænmeti og osti
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 2 paprikur (rauða og græna)
- 1 msk. smjör
- 2 msk. hveiti
- 8 dl. vatn
- 2 fiskiteningar
- Salt og pipar
- C.a. 500 gr. fiskur, þorskur, ýsa eða skötuselur + smávegis af rækjum eftir smekk
- 2 1/2dl. rjómi
- 200 gr. jöklasalat
- 200 g. ostur
Aðferð.
Saxið lauk, hvítlauk og papriku. Léttsteikið í smjöri. Stráið hveitinu yfir, bæta vatni í og hrærið stöðugt. Kryddið með fiskiteningi, salti og pipar. Fiskurinn settur út í, hleypið upp suðu og sjóðið í 4-5 mín. Bræðið ostinn í rjómanum, og hellið í súpuna. Þegar suðan er komin upp þá að lokum á að setja saxað jöklasalat út í. Súpan má ekki sjóða eftir það. Gott er að hafa hvítlauksbrauð með. Auðvitað má nota annan fisk t.d.lúðu, laxa, steinbít eða skelfisk.
Í tilefni sumarkomu er Grill Gúff málið í eftirrétt
- 100 gr. rifið súkkulaði
- 3 stk. kókosbollur
- 500 gr. ávaxtasalat, t.d. jarðaber, kíwí, vínber, perur, bananar og epli.
- Ávextir skornir í bita settir í álbakka. Súkkulaði dreift yfir.
- Klessið kókosbollunum þar yfir.
- Grillað í u.þ.b.10 mín. við lágan hita.
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.