Hopp og hí í Fljótunum
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
24.07.2018
kl. 10.01
Næstkomandi sunnudag verður sannkölluð fjölskyldustemning í Fljótunum en þá heldur Ferðaþjónustan á Sólgörðum fjölskyldudag. Margt skemmtilegt verður í boði, m.a. stærðar hoppukastali sem börnin fá aldrei nóg af að leika sér í og vekur alltaf mikla lukku.
Einnig gefst tækifæri á að æfa sig í að skjóta af boga og einnig verður boðið upp á bogabolta en hann er blanda af brennibolta og að skjóta af boga. Þar er aldurstakmark 14 ára og kostar 2.000 krónur að taka þátt í honum. Sundlaugin verður opin svo og leikvöllurinn við skólann.
Enginn aðgangseyrir verður innheimtur en hægt að kaupa sér grillaðar pylsur, ís og pizzur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.