Skráning hafin í Körfuboltabúðir Tindastóls
Körfuboltabúðir Tindastóls verða haldnar í ágúst og er skráning þegar hafin. Til að mæta vaxandi eftirspurn hefur verið ákveðið að bjóða upp á tvö námskeið, annars vegar dagana 8.-12. ágúst fyrir 12-16 ára krakka og 13.-14. ágúst fyrir 9-11 ára.
Yfirþjálfari búðanna er Tindastólsmaðurinn Helgi Freyr Margeirsson en meðal annarra þjálfara sem hafa boðað komu sína má nefna Söru Rún Hinriksdóttur, Sigurð Gunnar Þorsteinsson, Ísak Óla Traustason, Friðrik Hrafn Jóhannsson, Dagbjörtu Dögg Karlsdóttur og Árna Eggert Harðarson. Lögð verður áhersla á þjálfun í grunnatriðum leiksins og að veita leikmönnum forskot þegar æfingar hefjast hjá þeirra félögum að hausti en fyrir utan æfingarnar er þétt dagskrá af fyrirlestrum og fjölbreyttri afþreyingu.
„Ég skora á alla krakka sem hafa áhuga á körfubolta að láta sig ekki vanta í þessar stórskemmtilegu körfuboltabúðir,“ segir Helgi Freyr. „Það seldist fljótt upp í fyrra og mikil eftirspurn er eftir búðunum í ár svo við hvetjum alla foreldra, ömmur, afa, frændfólk og vini að styðja körfuboltakrakkana sína til þátttöku í búðunum.“
Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu körfuboltabúðanna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.