Metþátttaka í vanur/óvanur móti GSS
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
03.07.2020
kl. 09.53
Nýliðanámskeiði GSS lauk á hefðbundinn hátt með vanur/óvanur móti fimmtudaginn 2. júlí. Þátttakendur voru 48 talsins sem er metþátttaka í slíku móti. Áhuginn skein úr hverju andliti og óvanir kylfingar lærðu af þeim vönu.
Sigurvegarar í mótinu voru Guðný Sif Gunnarsdóttir og Björn Sigurðsson á 45 höggum. Að móti loknu var boðið upp á pizzu frá Hard Wok. Framkvæmd mótsins var í höndum nýliðanefndar GSS. Kennarar á nýliðanámskeiðinu voru Árný Lilja Árnadóttir og Atli Freyr Rafnsson. Þátttakendur námskeiðsins voru 38 talsins sem er met í 50 ára sögu klúbbsins.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.