Mátturinn var með liði Tindastóls
Tindastólsmenn héldu vestur á Verbúðaslóðir í gær og léku við lið Vestra í Subway-deildinni. Eins og stuðningsmenn Stólanna vita þá hefur gengið ekki verið gott á okkar mönnum upp á síðkastið og fjórir leikir í röð tapast. Sigurinn hér heima gegn liði Vestra fyrir áramót var torsóttur og áttu því margir von á erfiðum leik á Ísafirði. Strákarnir blésu á allt slíkt og áttu glimrandi leik í öðrum og þriðja leikhluta og ekki skemmdi fyrir að Sigtryggur Arnar kom niður á gullæð og mokaði þristum eins og enginn væri morgundagurinn. Lokatölur 88-107 fyrir Stólana.
Pétur og Siggi komu Stólarútunni í rallígírinn í upphafi leiks og virtist Ísfirðingurinn öflugi vera í góðum gír í sinni gömlu heimabyggð. Um miðjan fyrsta leikhluta var staðan 8-16 en Vestri kláraði leikhlutann vel og Ken-Jah Bosley gerði fimm stig á síðustu sekúndunum og staðan 19-22. Siggi og Arnar juku muninn í byrjun annars leikhluta og þrír þristar frá Arnari rétt fyrir miðjan leikhlutann komu muninum í 16 stig, 27-43. Staðan í hálfleik var síðan 40-54 og augljóst að heimamenn urðu að hefja leik af krafti í síðari hálfleik ef þeir ætluðu sér að draga stig í hús.
Þeir náðu að saxa pínu á forskotið í upphafi en Arnar og Bess slökktu vonarneista Vestramanna með tveimur snöggum þristum og fljótlega var forskotið komið í 18 stig. Munurinn skreið síðan í 22 stig þegar Arnar ákvað að klára þriðja leikhluta með 3ja stiga stæl. Staðan 63-85 og nú virtist allur máttur úr heimamönnum því Tindastólsmenn bættu í og voru komnir 33 stigum yfir, 68-101, þegar rétt rúmar fimm mínútur voru eftir. Þá fóru strákarnir okkar að hugsa um heimferðina og létu sig hlakka til ferðalags í vestfirskri fjallafegurð – þeir virtust í það minnsta gleyma leiknum sem þeir voru að spila og á tveimur mínútum gerðu heimamenn 16 stig án þess að Stólarnir rumskuðu. Staðan 84-101 en Stólarnir fundu taktinn á ný og tóku fagnandi á móti tveimur stigum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni sem er orðin ansi tvísýn.
Eru Stólarnir að braggast?
Sigtryggur Arnar átti sinn besta leik í vetur og nú er bara að vona að gullæðin sem hann kom niður á haldi áfram að gefa. Hann gerði 32 stig og þar af átta þrista í 16 tilraunum auk þess sem hann tók fimm fráköst og átti sex stoðsendingar. Bess var traustur með 27 stig og átta fráköst og Siggi Þorsteins gerði 14 stig og tók sömuleiðis átta fráköst. Pétur stjórnaði leik Stólanna vel, gerði 12 stig og átti níu stoðsendingar og tók sex fráköst. Rútuferðin vestur virtist ekki fara vel í Vrkic og Badmus, enda miklir skrokkar. Badmus endaði leikinn þó vel og hirti ellefu fráköst og gerði jafn mörg stig. Marko Jurica var stigahæstur heimamanna með 26 stig og Hilmir Hallgrímsson gerði 22.
Þess má geta að aðeins níu leikmenn voru á skýrslu hjá Vestra og breiddin lítil; í raun hægt að segja að þeir hafi orðið að spila á sex mönnum. Stólarnir mættu tíu og allir fengu ágætar mínútur. Kannski er þó rétt að taka fram að þó Stólarnir hafi verið fleiri þá voru alltaf jafn margir leikmenn inni á vellinum í einu...
Næsti leikur Tindastóls er ekki fyrr en 4. mars þegar strákarnir fara í Garðabæinn en Stólarnir hafa nánast gert það að listgrein síðustu misserin að tapa fyrir Stjörnunni. Kannski bara kominn tími á að hætta því rugli?
Tölfræði af vef KKÍ >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.