Villiféð fellt í sláturhúsi KS
Nú í morgun var fénu, sem frægt er orðið sem villiféð í Tálkna, lógað á sláturhúsi KS á Sauðárkróki. Flokkaðist það ágætlega og lömbin vel hæf til manneldis.
Að sögn þeirra Ástu Einarsdóttur og Camillu Sörensen matsmanna sláturhússins var féð í fínum holdum og flokkaðist ágætlega þrátt fyrir að vera háfætt og ekki um neina ræktun að ræða hjá þessum stofni. Vignir Kjartansson verkstjóri sagði hins vegar að aðeins sæist mar á sumum skrokkunum sem er afleiðing af smöluninni í Tálkna en hún var eins og kunnugt er nokkuð erfið. Vignir sagði ennfremur að féð hefði verið fast í gærunni og erfitt að flá það. Slátrun villifjárins var lokapunktur sláturtíðar hjá Afurðastöð KS þetta haustið og eru margir af erlendu verkamönnunum sem störfuðu á sláturhúsinu í haust farnir að pakka saman og fljúga til síns heima á morgun.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.