Varað við „kraftaverkalausn“
Mbl.is segir frá því að eitrunarmiðstöð Landspítala vekur athygli á því að hægt er að kaupa á netinu svonefnda „kraftaverkalausn“ MMS sem getur valdið alvarlegum veikindum eða dauða. Eindregið er varað við notkun MMS og sagt mikilvægt að tilkynna til yfirvalda ef grunur leikur á eitrun af völdum MMS.
Umrædd „kraftaverkalausn“ er seld undir heitinu Miracle mineral solution eða MMS en einnig á stundum Miracle mineral supplement. Í lausninni er 28% natríum klórít sem ætlað er að lækna sjúkdóma; allt frá alnæmi til berkla.
Í sameiginlegri tilkynningu frá sóttvarnarlækni, Lyfjastofnun, Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Eitrunarmiðstöð Landspítala segir að engin vísindaleg gögn liggi fyrir sem styðji notkun MMS við sjúkdómum. Natríum klórít er hins vegar eitur sem getur valdið metrauðablæði, skemmdum á rauðum blóðkornum og nýrnabilun.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.