Val á manni ársins 2009 í Húnaþingi
Líkt og undanfarin ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Húnaþingi. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Húnaþingi 2009 getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
Valið stendur til miðnættis 22. janúar nk. og verða úrslit kynnt laugardaginn 23. janúar nk.
Lesendur Húnahornsins völdu fyrir ári síðan Lárus Ægi Guðmundsson frá Skagaströnd mann ársins 2008 í Húnaþingi en hann stofnaði m.a. styrktarsjóð til eflingar menningar- og listalífi á Skagaströnd og í Skagabyggð.
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu.
Þetta er í fimmta sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Húnaþingi.
Menn ársins síðustu ár eru þessir:
2008 Lárus Ægir Guðmundsson
2007 Rúnar Þór Njálsson
2006 Lárus B. Jónsson
2005 Lárus B. Jónsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.