Upplestur á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu

Heimilisiðnaðarsafnið.MYND AÐSEND
Heimilisiðnaðarsafnið.MYND AÐSEND

Laugardaginn 14. desember kl. 15:00 verður hinn hefðbundni Upplestur á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu.

Séra Sigurður Ægisson, mun kynna og lesa úr bókum sínum:

Völvur á íslandi og Okei, Leitin að upphafi og sögu þekktasta orðatiltækis í heimi.

Þá mun Magnús Ólafsson, kynna bók sína Öxin, Agnes & Friðrik, síðasta aftakan á Íslandi.

Eftir lesturinn verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur og höfundar selja og árita bækur sínar.

Eigum saman notalega stund í safninu okkar.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir