Umhverfisverðlaun fyrir árið 2009

nordurland_vestra_kortFerðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2009. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

 Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

 Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta koma til greina sem verðlaunahafar. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög.

 Ferðamálastofa óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009 og skulu sendast til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600

Akureyri eða með tölvupósti á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30. október næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir