Ullarverð hækkar til bænda

istexSkrifað var undir nýtt samkomulag um ullarviðskipti fyrir helgi.  Samkvæmt því hækkar verð ullar til bænda um 8% frá og með 1. nóvember. 

 Rekstur Ístex hefur gengið vel á því ári sem nú er að líða (uppgjörsár þess er frá 1. nóv-31. okt) og fyrirtækið fjórfaldar hlut sinn í ullarverðinu á milli ára.  Það breytti þó forsendum að miklu meira magn ullar barst til Ístex á liðnum vetri heldur en fyrri samningur gerði ráð fyrir eða 717 tonn í stað 640.  Þar sem greiðslur vegna ullarnýtingar í sauðfjársamningi eru föst fjárhæð en ekki magntengd, hefur það áhrif á verðlagninguna nú.

 Verð einstakra flokka verða sem hér segir: Miðað er við verð pr. kíló af hreinni ull.

 Lambsull: 648 kr./kg
H-1: 588 kr./kg
H-2, M-1-S, M-1-G og M-1-M: 527 kr./kg
M-2: 46 kr./kg

 Matsgjald til bænda verður 22 kr./kg

 Greiðslum til bænda verður flýtt frá því sem var í fyrra samningi og fyrirkomulag þeirra er eftirfarandi: Fyrri greiðsla - 70% af heildarverðmæti

Ull sem skráð er í nóvember 2009 verði greidd 31. janúar 2010.

Ull sem skráð er í desember 2009 og janúar 2010 verði greidd 28. febrúar 2010.

Eftir þann tíma verði greitt í lok næsta mánaðar eftir skráningarmánuð.

 Seinni greiðsla - 30% af heildarverðmæti

Ull sem skráð er fyrir 1. júlí 2010 verði greidd að fullu fyrir 1. september 2010.

 //saudfe.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir