Töfratréð blómstraði í febrúar
feykir.is
Skagafjörður
20.04.2010
kl. 15.12
Sigrún Aadnegard á Bergstöðum hafði samband við Feyki og sendi meðfylgjandi mynd af töfratré sem er í garðinum hjá henni. Sigrún tók eftir því að tréð byrjaði að blómstra í febrúar en fór á kaf í snjó skömmu síðar, en undan snjónum kom það óskemmt og glæsilegt.
Sigrún gróðursetti tréð sem sprota fyrir 3árum en töfratré blómstra dökkbleikum blómum snemma vors áður en það laufgast og loks ber það rauð eitruð ber á haustin.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.