Tilboð óskast í framkvæmdir að Sölvabakka

Óskað hefur verið eftir tilboðum í framkvæmdir til gerðar urðunarstaðar að Sölvabakka í Austur Húnavatnssýslu. Það er verkfræðistofan Efla hf. sem annast útboðið fyrir hönd byggðasamlagsins Norðurár. Til að mæta brýnni þörf fyrir nýjan urðunarstað í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði hefur byggðarsamlagið Norðurá leitað að hentugum stað fyrir urðun.

Urða þarf þann hluta úrgangs sem til fellur á þjónustusvæðinu sem ekki er flokkaður og fer í endurnotkun, endurnýtingu eða endurvinnslu. Norðurá bs. hefur nú fengið heimild landeigenda á Sölvabakka til að opna þar nýjan og fullkominn urðunarstað.

Helstu magntölur eru:

- Gröftur og tilfærsla jarðvegs 380.000 rúmmetrar.

- Dúkþéttingar 14.000 fermetrar.

- Lagnir 1.500 metrar.

- Vegfylling 15.000 rúmmetrar.

- Girðing 2.000 metrar.

Útboðsgögn fást á skrifstofu Efldu hf. verkfræðistofu, Suðurlandsbraut 4a frá og með miðvikudeginum 21. apríl 2010 gegn greiðslu kr. 5.000 í peningum og skráningu á samskiptaaðila bjóðanda í útboði.

Opnun tilboða verður 6. maí 2010, kl 14:00 í Ráðhúsi Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki.

Nánar um framkvæmdina

Urðunarstaðurinn mun geta tekið við allt að 21.000 tonnum af almennum úrgangi á ári en í dag falla til á svæðinu nálægt 16.000 tonnum árlega vegna rúmlega 6.000 íbúa, rekstrar og iðnaðar. Þá er einnig gert ráð fyrir að hægt sé að taka við úrgangi frá sveitarfélögum utan Norðurár bs.

Urðunarstaðurinn mun uppfylla nýjar kröfur reglugerðar um urðun og rekstur sem núverandi urðunarstaðir á starfssvæði Norðurár bs. uppfylla ekki. Urðunarhólf verður að öllu leyti fellt undir núverandi landyfirborð en ekki byggt upp úr landinu eins og venja er. Landinu verður að rekstri loknum skilað í sem allra líkustu svipmóti og það er í dag og eftir að úrgangur hefur náð fullu jafnvægi við umhverfi ættu nánast engin ummerki að verða þar um starfsemina. Þetta leiðir einnig til þess að ýmis áhrif og ónæði sem oft fylgja urðunarstöðum verða lágmörkuð en nýting lands um leið hámörkuð. Verulega dregur þannig t.d. úr sjónrænum áhrifum, hættu á foki úrgangs og ryks og hljóðmengun. Til að draga úr hættu á mengun jarðvegs og vatns verður söfnunarkerfi fyrir sigvatn í urðunarhólfi og það leitt í gegnum hreinsun fyrir losun í viðtaka.

Sveitarfélögin sem standa að Norðurá bs. stefna að því dregið sé jafnt og þétt úr urðun lífræns úrgangs með aukinni flokkun og endurvinnslu sem aftur leiðir til þess að verulega dregur úr gasmyndun á urðunarstað og þeim umhverfisáhrifum sem af því leiðir. Metangasi sem myndast verður safnað til brennslu. Allar aðstæður þykja mjög góðar fyrir uppbyggingu og hagkvæman og góðan rekstur urðunarstaðar á Sölvabakka. Mikið af möl og sandi verða til við gerð urðunarhólfs sem sett verða á lager á lóð og síðan nýtt í nálægar framkvæmdir.

/Húni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir