Þungar áhyggjur hjá Byggðaráði

skagafjordur_logoByggðaráð fjallaði á fundi sínum í morgun um fjárveitingar til opinberra stofnanna í Skagafirði eins og þær birtast í nýju fjárlagafrumvarpi ársins 2010. 

 Byggðarráð lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar skerðingar á fjárframlögum til opinberra stofnana í sveitarfélaginu og fækkunar starfa sem af því mun leiða, án þess að sýnt sé að af því hljótist raunverulegur sparnaður. Er þar sérstaklega átt við kerfisbreytingar er m.a. varða Sýslumannsembættið á Sauðárkróki og Héraðsdómstól Norðurlands vestra, sem valda aukinni miðstýringu vegna flutnings stjórnunarstarfa burt af svæðinu.

Byggðarráð ákvað ennfremur að óska eindregið eftir fundi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis hið allra fyrsta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir