Sumaræfingar fyrir eldri iðkendur

Unglingaráð Tindastóls í körfubolta mun í sumar bjóða í fyrsta sinn  upp á markvisst sumarprógram fyrir eldri krakka en þá sem eru í Sumar TÍM.

 

Í tilkynningu frá ráðinu segir að þetta sé  kærkomið
fyrir þá sem vilja æfa og taka framförum í körfunni á sumrin. Þá stefnir ráðið á að vera með lið í öllum aldursflokkum á unglingalandsmóti á Sauðárkróki í sumar. 

 

Flokkaskipting verður með þessum hætti:

 

7. –  8. bekkur stráka þjálfari Ingvi Guðmundsson

 

7. – 10. bekkur stúlkna  þjálfari Sigríður Inga Viggósdóttir

 

Æfingagjöld verða kr. 11.500 fyrir júní, júlí og ágúst. 
Tvær æfingar verða í viku í júní, en áformað að fjölga þeim í þrjár þegar nær dregur unglingalandsmótinu. Þær verða svo aftur tvær í ágúst.
Æfingarnar hefjast í annarri viku júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir