Stóðréttir og ljósmyndasýning í Þverárrétt
Stóðréttir voru haldnar í Þverárrétt í Vesturhópi um helgina eða laugardaginn 26. september. Ekki viðraði vel til gangna- og réttarstarfa og var veður um frostmark og gekk á með hríðaréljum á meðan réttarstörf stóðu yfir.
Fjölmargir hrossabændur létu það þó ekki aftra sér frá réttarstörfum og var fjölda hrossa réttað að venju. Kvenfélagið Ársól sá um veitingar í réttarskúrnum og var heitt kakó og vöfflur með sultu og rjóma kærkomið til að ylja í kuldanum.
Þá var búið að setja upp í kaffiskúrnum sýningu þar sem saga réttarinnar er sögð í máli og myndum. Safnað hefur verið saman ljósmyndum frá ýmsum tímum, þær elstu frá því stuttu eftir 1930 og margt forvitnilegt sem kom fram á sýningunni um réttar- og gagnastörf í Þverárhrepp hinum forna. Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra. Myndirnar tók Pétur Jónsson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.