Stóðrétta súpa og ekta sænskt ananaspaj
Þau Kristin Lundberg og Júlíus Guðni á Auðunnarstöðum áttu uppskriftir vikunnar fyrir réttum þremur árum. -Um stóðréttahelgina, sem er fyrsta helgin í október, er húsið yfirfullt af gestum og “opið” hús hjá okkur, segir Kristin. -Þá verður eitthvað gott og matamikið að vera í boði og hefur þessi súpa verið borin fram síðustu 10 árin.
Stóðrétta súpa (4-6)
- 1 kg folaldakjöt án beina (nautakjöt)
- Kjötkraftur, 3 teningar af Honig nautakrafti
- Paprika, 2 pakkar frosin paprika í strimlum (eða samsvarandi ferskur, soðinn)
- 1dl tomatapúre
- 3 hvítlauksbátar
- 5 dl matreiðslurjómi
- Salt eftir smekk
- Pipar eftir smekk
- 1 msk paprikuduft
- Gnocci pasta
- Vatn til að þynna súpuna
Skera kjötið niður í litla bita og brúna vel. Sjóðið kjötið í u.þ.b. klukkutíma (þangað til að það verður vel meyrt) í vel söltuðu vatni.
Pastað soðið og geymt.
Blandið saman papriku, pressuðum hvítlauk, paprikuduft, tómatmauki og rjóma og látið suðuna koma upp. Setjið kjötið og pastað út í. Sjóðið saman í smá stund og smakkið til með salt og pipar (meiri hvítlauk fyrir þá sem vilja…)
Súpan geymist vel og er best 2. og 3. daginn…
Bollu brauð
- 1 bréf ger
- 2 dl hveitiklíð
- 8 dl hveiti
- 1tsk möluð fennika
- ½ tsk salt
- 2 msk sykur
- 5 dl vatn
- Egg til að pensla ofan á.
Blandið öllum þurrefnunum saman. Hrærið saman þurrefnunum og volga vatninu. Hnoðið vel og látið gerjast undir dúk í klukkutíma. Skiptið niður í 24 bita og búið til bollur. Setjið bollurnar á bökunarpappír á plötu og látið gerjast smá. Penslið með þeyttu eggi og bakist í 12 mín. við 225° C
Ananaspaj
Deig:
- 150 g smjörlíki
- 3 dl hveiti
- 1 dl sykur
- 1 tsk lyftiduft
Setjið smjörlíkið í pott og látið það bráðna, blandið saman hveiti, sykri og lyftidufti og hrærið það svo vel saman við bráðnaða smjörlíkið.
Þrýstið deiginu jafnt út í 25 cm pajform og láta vel í kantana.
Fylling:
- 1 lítil dós ananaskurl
- 1 egg
- 1 lítil dós sýrður rjómi
- 1 tsk vanillusykur
- ½ dl sykur
Blandið öllu vel saman og hellið svo ofan á deigið i forminu. Bakað við 180° C í u.þ.b. 35 mín. eða þangað til að kanturinn er gullinbrúnn. Smakkast best volgt með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Verði ykkur að góðu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.