SSNV hlaut styrk frá Landsvirkjun
Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er sagt frá því að í síðustu viku hafi samtökin fengið þær frábæru fréttir að SSNV hafi verið úthlutað styrk fyrir tveimur viðburðum úr samfélagssjóði Landsvirkjunar. Styrkirnir eru vegna ungmennaþings um valdeflingu ungs fólks á Norðurlandi vestra sem fram á að fara á Blönduósi í október og síðan örráðstefnu um umhverfismál á Norðurlandi vestra.
Valdefling ungs fólks á Norðurlandi vestra
Áætlað er að halda ungmennaþing á Blönduósi í október þar sem ungu fólki á Norðurlandi vestra verður boðið að taka þátt. Markmið verkefnisins er að standa fyrir viðburði þar sem ungt fólk á aldrinum 15-18 ára tekur þátt í vinnustofu þar sem það hefur tækifæri til þess að ræða málefni sem brenna á því og koma sínum skoðunum á framfæri. Á vinnustofunni verður unga fólkið hvatt til skapandi hugsunar og nýsköpunar til að takast á við áskoranir sem tengjast umhverfismálum og sjálfbærri framtíð í landshlutanum. Markmiðið er að valdefla ungt fólk í landshlutanum og efla tengslanet þess.
Örráðstefna um umhverfismál
Styrkur fékkst til þess að halda örráðstefnu um umhverfismál á Norðurlandi vestra seinni hluta ársins. Markmið verkefnisins er að efla þekkingu á sviði umhverfismála á Norðurlandi vestra og stuðla að auknu samtali milli ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja í landshlutanum. Efla þekkingu stjórnenda á því hvernig hægt er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá rekstri og forðast grænþvott.
Hægt er að sjá meira um úthlutanir úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar hér.
Heimild: ssnv.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.