Skrásetja skal alla ketti sveitarfélagsins
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samþykkt reglugerð um kattahald sem Umhverfisráðuneytið hefur staðfest. Samkvæmt því skuli allir kattaeigendur í sveitarfélaginu skrá ketti sína og eigi er heimilt að halda fleiri en þrjá ketti á hverju heimili.
Í reglugerðinni segir m.a.:
Sveitarstjórn er heimilt að veita lögráða einstaklingum, sem búa í sveitarfélaginu leyfi til kattahalds með ákveðnum skilyrðum. Leyfið er bundið við nafn og heimilisfang viðkomandi og er ekki framseljanlegt. Leyfið er einnig bundið við þann kött sem það er gefið út fyrir.
Allir heimiliskettir á Skagaströnd skulu skráðir á skrifstofu sveitarfélagsins gegn greiðslu skráningargjalds og þar fá eigendur heimiliskatta afhenta númeraða plötu með skráningarnúmeri kattarins, sem alltaf skal vera í ól um háls dýrsins.
Óheimilt er að láta kött, eldri en 3ja mánaða, dvelja lengur en einn mánuð á heimili án þess að sótt sé um leyfi fyrir hann.
Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en þrjá ketti eldri en þriggja mánaða á sama heimilinu.
Umsókn um leyfi til kattahalds skal skila inn á skrifstofu sveitarfélagsins á þar til gerðum eyðublöðum. Með undirritun umsóknar skuldbindur umsækjandi sig til að hlíta í einu og öllu fyrirmælum samþykktar um kattahald. Sveitarstjóri eða fulltrúi hans synjar eða gefur út umbeðið leyfi.“
Gjaldskrá fyrir kattahald hefur sömuleiðis verið ákveðin og er árlegt leyfi til kattahalds 1.500 kr. en aukagjald fyrir týnt merki 1.000 kr.
Framangreind ákvæði um kattahald hafa þegar tekið gildi og því skorar sveitarstjórnin á kattaeigendur að skrá ketti sína hið fyrsta og merkja þá með sérstökum merkjum sem afhent eru við skráningu.
Sömuleiðis eru hundaeigendur áminntir um skráningu séu hundar þeirra ekki þegar á skrá.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að reglulega þurfi að ganga í að eyða villiköttum. Til að tryggja að heimiliskettir séu ekki teknir í misgripum þarf að merkja þá að öðrum kosti gætu þeir verið álitnir villikettir og meðhöndlaðir sem slíkir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.