Skóhornið
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
22.09.2009
kl. 12.05
Út er komin fjórða ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar, Hér var eitt sinn annað skóhorn. Bókin er 80 blaðsíður og skiptist í fjóra kafla.
Sem fyrr er ástin fyrirferðamikil hjá höfundi bæði gömul og ný, en einnig er að finna uppskrift að tortellini pasta og steiktum pylsum. Einnig eru ferðaljóð sem lýsa mismunandi upplifun skáldsins á heiminum hér heima sem erlendis. Bókið er prýðisgóð aflestrar og gefur fyrri bókum Gísla Þórs ekkert eftir.
Fyrri bækur höfundar,
Harmonikkublús 2006.
Aðbókin 2007
Ég bið að heilsa þér 2008
Kápumynd teiknaði Óli Þór Ólafsson.
Nýprent prentaði.
Hægt er að nálgast bókina með því að senda póst á netfangið gislith@simnet.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.