Síminn lækkar verð á gagnaflutningi og SMS sendingum í Evrópu

Siminn_logoFrá og með 1. janúar lækkar Síminn verð á gagnaflutningi og SMS sendingum til viðskiptavina Símans þegar þeir ferðast innan ESB og EES landa. 

 Verð á SMS sendingum innan ESB og EES svæðis var áður 90 kr. en eftir breytinguna kostar SMS sendingin 26 kr.  Verð á gagnaflutningi fer niður í 325 kr./MB sem er 16% af meðaltalsverði sem var áður á þessu svæði.  Miðast verðið við meðalgengi í desember. Verðbreytingin er í samræmi við ákvæði í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) sem hingað til hefur einungis gilt um símtöl.  Verð á fjarskiptum innan Evrópusambandsins lækkar í þrepum ár hvert samkvæmt reglugerð um þak á verðlagningu og mun gera það  til ársins 2012.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir