Síðasti skráningardagur í Sumar T.Í.M

Í dag er síðasti skráningardagur í Sumar T.Í.M fyrir sumarið. Hægt verður að koma í Hús frítímans í dag á milli 9.00 og 15.00 morgun og fá aðstoð við skráningu.

 

Einnig er hægt að hringja í síma 4556109 eða senda
fyrirspurn á sumartim@skagafjordur.is

Öll skráning fer fram á síðunni: http://tim.skagafjordur.is

Starfsfólk Frístundasviðs Skagafjarðar hvetur fólk til að skrá börnin sín í námskeið sem fyrst því hámarksfjöldi er í hvert námskeið. Einnig er minnt á að ætli barn að æfa fótbolta, körfu, sund, frjálsar, öðruvísi íþróttir, fimleika, golf, fara á reiðnámskeið eða siglinganámskeið og svo framvegis í sumar er skráningin öll á  tim.skagafjordur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir