Ríkisstjórnin vill hækka flutningskostnað

Einar K Guðfinnsson

Ríkisstjórnin kann að forgangsraða;  eftir sínu höfði. Nú hefur hún tekið ákvörðun um að hækka flutningskostnað á landsbyggðinni með sérstakri skattlagningu undir yfirskyni umhverfisverndar. Það er illt að vita til þess að sá ágæti málstaður umhverfisvernd,  skuli misnotaður af ríkisstjórn sem skirrist ekki við að  leggja með sérstökum hætti byrðar á íbúa landsbyggðarinnar.  En þetta kallar forsætisráðherrann að ríkisstjórnin sé að jafna byrðunum af nýrri skattheimtu. Sem sagt breiðu bökin finna menn sérstaklega á landsbyggðinni. Þá vitum við það.

En ríkisstjórnin ber ekki ein ábyrgð á þessari forgangsröðun. Það gera líka þingmenn hennar sem með samþykkti sínu á skattatillögum ríkisstjórnarinnar eru eins konar ábyrgðarmenn málsins. Það á líka við um þingmenn ríkisstjórnarflokkanna á landsbyggðinni.

Alls staðar nema hér er kolefnisskattlagning hugsuð til þess að leysa aðra skattlagningu af hólmi. Hér er hún  viðbótarskattur, en hefur ekkert með umhverfismál að gera. Nema að búa til skálkaskjól fyrir ríkisstjórnina. Fórnarlömbin eru meðal annars ferðaþjónusta, sjávarútvegur, einstök fyrirtæki og landsbyggðin.

Við vitum að eftir því sem vegakerfið hefur batnað hefur flutningskostnaður lækkað, þó flestir vildu sjá enn meiri árangur. Nýleg dæmi frá Vestfjörðum sýna þetta. Þar lækkaði flutningskostnaður með nýjum vegum og styttri leiðum. Nú ætlar ríkisstjórnin að strika það út sem áunnist hefur í þessum efnum, eftir áralanga baráttu; og það  með einu pennastriki.

Og á sama tíma  boðar fjárlagafrumvarpið að engar – og ég segi og skrifa – alls engar nýjar nýframkvæmdir verði boðnar út í vegagerð á næsta ári. Það er ekki nóg með að þannig séu slegnar út af borðinu öll fyrirheit um vegabætur. Þessar ákvarðanir, hækkun skatta og útboðsstopp,  slá kalda meira og minna alla verktakastarfsemi  út um landsins byggðir. Einyrkjarnir, dugnaðarforkarnir, sem áratugum saman hafa kannski byggt upp fyrirtæki sín, sjá nú afrakstur erfiðis síns að engu verða. Og það vegna meðvitaðrar stjórnarstefnunnar.

 Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir