Ríkisstjórnin fann breiðu bökin

Einar K Guðfinnsson

Ríkisstjórnin segist vilja finna breiðu bökin til þess að bera hærri skatta og hlífa öðrum. Afraksturinn sem við sjáum nú í nýjum skattalögum sýna að stjórnin er ekki mjög fundvís á þessa hluti. Skattarnir hækka hjá öllum, líka þeim sem hafa lægstu launin. Og í sumum skattalagabreytingum virðist ríkisstjórninni hafa lánast það að slæma högginu einkanlega þar sem síst skyldi. Nýju lögin um orku og auðlindaskatta eru dæmi um þetta.

Þar virðist ótrúlega margt gert með öfugum klónum, eins og neðangreind dæmi sýna:

1. Þetta eru ekki eiginlegir auðlindaskattar en þeir leiða til hærra orkuverðs. Þetta eru bara skattahækkanir í dularbúningi þar sem óorði er komið á umhverfismál í leiðinni.

2. Eldsneytisskattar og kolefnisgjöld hækka eldsneyti, bensín og olíu. Þessi gjöld hækka  gríðarlega á þessu ári. Þetta bitnar einkanlega á flutningskostnaði  á landsbyggðinni. Þar með hækkar vöruverðið sérstaklega á landsbyggðinni, þar sem það er þó oft hæst fyrir.

3. Gjaldtökuaðferð ríkisstjórnarinnar er þannig samansett gagnvart hitaveitum, að það leiðir til mestrar hækkunar þar sem verðið er hæst fyrir. Enn er það landsbyggðin sem blæðir.

4. Gjöldin hækka mjög rekstrarkostnað fjölskyldubíls, sem almenningur getur ekki verið án. Ný skattlagning á þessu ári eykur rekstrarkostnaðinn um 40 til 50 þúsund krónur á venjulegum bíl.

5. Að mati þeirra sem gleggst þekkja til, er nýji skatturinn þungt högg á nýsköpunarfyrirtækin, sem ríkisstjórnin þykist þó styðja. Sem sagt ekkert að marka þær stuðningsyfirlýsingar.

6. Þessi skattlagning skerðir samkeppnisstöðu útflutningsgreina okkar, sjávarútvegs og iðnaðar til dæmis, en hjálpar útlendu fyrirtækjunum sem við keppum við. Stuðlar  því að  fækkun starfa.

7. Gjaldtakan bitnar mjög á ferðaþjónustunni, hækkar fargjöld, fælir erlenda ferðamenn  frá landinu og skerðir þannig útflutningstekjur og atvinnusköpun. Ferðalög Íslendinga verða dýrari.

Allt þetta kallar ríkisstjórnin að skattleggja breiðu bökin og félagslegt réttlæti. Einkennileg er hennar réttlætiskennd.

 

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir