Reglur um rjúpnaveiði í Húnaþingi vestra
Fyrirkomulag rjúpnaveiða á tilteknum jörðum og afréttum í eigu Húnaþings vestra ásamt hluta Víðidalsfjalls, sem er í einkaeigu (sbr. svæði 1), verður með eftirfarandi hætti haustið 2009:
1. Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða á tilteknum jörðum og afréttum sveitarfélagsins og í land Hrappsstaða og Syðra Kolugils (sbr. svæði 1). Um verður að ræða fernskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.
Svæðin eru:
1.) Lækjarkot, Gafl (Í sameign Húnaþings vestra og Hrappstaða), Hrappsstaðir og Syðra-Kolugil.
2.)Víðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Öxnatungu.
3.) Engjabrekka, Kirkjuhvammur og Ytri-Vellir á Vatnsnesi.
4.) Arnarvatnsheiði og Tvídægra.
2. Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitímanum frá 30. október 2009 til og með 6. desember 2009 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Ekki er um að ræða sölu á dagsleyfum. Veiðimönnum er frjálst að kaupa leyfi á fleiri en eitt veiðisvæði.
3. Veiðileyfin verða til sölu á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstanga, hjá Ferðaþjónustunni Dæli, Ferðaþjónustunni Kolugili og Söluskálanum Hvammstanga. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 4.000- til veiðimanna með lögheimili í Húnaþingi vestra. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 6.000- til veiðimanna með lögheimili utan Húnaþings vestra.
4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin verður ekki takmarkaður, en tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að benda þeim er fara á veiðisvæði án leyfis á að nærveru þeirra sé ekki óskað á veiðisvæðinu. Veiðimenn eru einnig hvattir til að tilkynna slík tilfelli til skrifstofu Húnaþings vestra.
5. Veiðimönnum ber skylda til að virða landamerki jarða er liggja að umræddum veiðisvæðum og þeim ber að leita samþykkis landeigenda þurfi þeir að fara um landareignir annara til að komast að veiðisvæði.
6. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.
Sveitarstjóri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.