Ný dælustöð í Brautarhvammi
Tekin hefur verið í notkun ný dælustöð fyrir fráveituna í Brautarhvammi en stækkun á sumarhúsahverfinu gerði það að verkum að núverandi rotþrær voru ekki nógu stórar.
Aðgerðin var talsvert umfangsmikil en leggja þurfti nýjar stofnlagnir fyrir sumarhúsin og svo aftur að leggja lögn frá grunnskólanum að þjóðvegi 1. Voru svo fengnir verktakar til að reka lögn í gegnum þjóðveginn þannig að ekki þyrfti að grafa hann í sundur. Liggur svo þrýstilögn frá dælubrunni og í gegnum þjóðveginn til að dæla inn á fráveitukerfið.
Með þessari aðgerð fer öll fráveitan austan Blöndu í gegnum hreinsistöð fráveitunnar þar sem fram fer svo kölluð einsþreps hreinsun. Hreinsistöðin var tekin í notkun árið 2003 og hefur Blönduósbær með markvissum aðgerðum byggt upp fráveitukerfið á liðnum árum.
/Húni.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.