Námskeið í olíumálun í Nesi listamiðstöð
Nes listamiðstöð býður uppá námskeið í olíumálun helgina 14.-15. nóvember. Kennari á námskeiðinu er Halldór Árni Sveinsson en hann hélt námskeið hjá Nesi listamiðstöð í júní 2008 við góðan orðstýr. Halldór Árni sem kennir að öllu jöfnu fjölmiðlun við Flensborgarskóla í Hafnarfirði hefur jafnframt kennt olímálun við Námsflokka Hafnarfjarðar og víðar síðustu tuttugu árin. Á námskeiðinu, sem er ætlað bæði byrjendum og lengra komnum, verður farið í val á myndefni, myndbyggingu og blöndun, notkun og meðferð olíulita.
Námskeiðið í olíumálun hjá Nesi listamiðstöð er liður í verkefninu Lifandi list, sem styrkt er af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra. Nánari upplýsingar fást hjá Nesi listamiðstöð nes@neslist.is og í síma 452 2816 og er námskeiðsgjald 9.000 kr.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.