Myndir úr Víðidalstungurétt

Stóðið rekið til réttar. Mynd Hrafnhildur L Hafsteinsdóttir

Stóði Víðdælinga var smalað föstudaginn 2.október af  Víðidalstunguheiði en réttarstörf fóru fram daginn eftir. Mikið fjölmenni tók þátt í smöluninni þó veðrið hefði mátt vera betra.

 Margt var á dagskrá s.s. uppboð á völdum hrossum, útdráttur á happdrætti en allir þeir sem keyptu sér kaffi hjá Kvenfélaginu Freyju fengu happdrættismiða í kaupbæti.

Á laugardagskvöldinu var svo haldinn stóðréttadansleikur í Víðihlíð þar sem sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson lék fyrir dansi og setti endapunktinn á frábæra réttarhelgi hjá krónprinsessu stóðréttanna. Hrafnhildur L Hafsteinsdóttir var í réttunum og myndaði stemninguna.

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir