Multi Musica endurflutt
MULTI MUSICA hópurinn frumflutti tónleikadagskrá sína í Miðgarði þann fyrsta vetrardag við frábærar undirtektir áheyrenda. Á tónleikunum var ennfremur boðið upp á smakk frá 10 þjóðlöndum og var það skipulagt af Skagafjarðardeild Rauða Krossins. Góðir gestir kynntu starfsemi sína, fulltrúar frá UNIFEM og Félagi kvenna af erlendum uppruna. Nú verða tónleikarnir endurteknir á Mælifelli þann 20.nóvember næstkomandi kl. 21.00.
Farið er með áhorfendur í einskonar heimsreisu en flutt verða 13 lög frá 12 löndum.
Löndin sem um ræðir eru Spánn, Ísrael, Rúmenía, Kúba, Mexíkó, Chile, Argentína, Brasilía, Indland,Grikkland, Suður-Afríka og Kenía.
Um afar fjölbreytta tónlist er að ræða, þjóðlög, tangó og salsa svo eitthvað sé nefnt og fá áheyrendur að upplifa hlýlega og seiðandi tónlist í byrjun vetrar í alþjóðlegri stemningu.
Multi Musica eru:
Ásdís Guðmundsdóttir, söngur og ásláttur
Sorin Lazar, gítar
Jóhann Friðriksson, trommur
Rögnvaldur Valbergsson, hljómborð,gítar og harmonikka
Sigurður Björnsson, bassi
Sveinn Sigurbjörnsson, bongó og trompet
Íris Baldvinsdóttir, bakraddir og ásláttur
Jóhanna Marín Óskarsdóttir, bakraddir, strengir og ásláttur
Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir og ásláttur
Þórunn Rögnvaldsdóttir, bakraddir og ásláttur
Kynnir á tónleikunum verður Íris Baldvinsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er aðgangseyrir kr.1500
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.