Malen, Sóla, Sigvaldi og Villt Vesti
Laugardaginn 5. apríl nk. er fólk beðið um að taka fram kúrekahattana og stígvélin, ekki af því það er stuðningsmannakvöld Tindastóls, leikur í Síkinu eða Laufskálaréttir, heldur kántrýtónleikar í Gránu. Það eru þau Malen, Sóla og Sigvaldi ásamt Villtu Vestunum sem skipað er þeim Gunnari Sigfúsi, Fróða og Pálma sem ætla að skella upp höttunum og slá í kántrýveislu.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.295 kr. á mánuði m/vsk (2.968,5 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 1.990 kr. á mánuði m/vsk. (1.793 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 555 kr. vikan m/vsk. (500 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Sveppafyllt ravioli að hætti Ítala | Matgæðingar Feykis
Fyrstu matgæðingar Feykis á þessu fallega ári voru Þóra Rut Jónsdóttir og Jón Haukur Jónsson. Þóra er uppalin á Sauðárkróki og starfar sem forstöðumaður sjálfbærni og umbóta hjá Advania og Jón Haukur er úr Reykjavík og er hagfræðingur sem starfar sem gröfuverktaki. Þóra og Jón Haukur eru nú búsett í Kópavogi en foreldrar hennar eru Jón Eðvald og Linda Nína í Háuhlíðinni á Króknum.Meira -
Fiskisúpa og mömmu konfektkaka | Matgæðingur Feykis
Matgæðingur vikunnar í tbl. 47, 2024, var Fanney Ísfold Karlsdóttir en hún starfar sem sjúkraþjálfari á HSN á Króknum og hefur gert í töluvert mörg ár. Áhugi hennar á hreyfingu og hollu mataræði hefur fylgt henni lengi og er eitt af áhugamálum fjölskyldunnar að elda og borða góðan og hollan mat, helst að “elda frá grunni”, prófa nýjar uppskriftir og þróa eigin.Meira -
Framkvæmdir við höfnina ganga ágætlega
„Framkvæmdir við Ásgarð ganga vel, Borgarverk er langt komið með sinn verkhluta. Þeir hafa verið með 4-5 starfsmenn á Skagaströnd og stórvirkar vinnuvélar og bíla eftir þörfum síðan þeir byrjuðu fyrir alvöru í september. Þeir luku við að reka niður stálþilið, rétta það af, fylla og þjappa efni í garðinn 6. mars sl.," segir Baldur Magnússon hafnarstjóri á Skagaströnd þegar Feykir forvitnaðist um hvernig framkvæmdir gengju fyrir sig.Meira -
Áfram slátrað í sláturhúsinu á Hvammstanga
Bændablaðið sagði frá því í dag á fréttavefnum sínum að slátrun hjá Sláturhúsi Kaupfélags Vestur-Húnvetninga (SKVH) á Hvammstanga verður með svipuðu sniði á þessu ári og verið hefur. Ákvörðun um að hætt yrði að slátra á Hvammstanga hafði aldrei formlega verið tekin en áform voru uppi um að slátruninni yrði hætt þar, sem liður í hagræðingu vegna kaupa Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á Kjarnafæði Norðlenska.Meira -
Opið fyrir skráningar á skákmótið á Blönduósi sem fer fram dagana 15.-21. júní
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 21.03.2025 kl. 13.50 siggag@nyprent.isSkáksamband Íslands ætlar að bregða á leik í sumar í tilefni af 100 ára afmæli sínu segir á fréttavefnum huni.is. En haldið verður Icelandic Open - Opna Íslandsmótið í skák á Blönduósi dagana 15.-21. júní. Tefldar verða níu umferðir á sjö dögum í Krúttinu í gamla bænum. Skákhátíðin hefst með aðalfundi sambandsins sem fram fer laugardaginn 14. júní og lýkur með sterku hraðskákmóti, Blönduós Blitz, sem fram fer 22. júní. Búið er að opna fyrir skráningu í mótið. Góð verðlaun verða á mótinu og verða þau gerð opinber í vikunni. Alls konar skemmtilegir hliðarviðburðir fara fram mótinu samhliða en þeir verða auglýstir síðar.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.