Maður ársins á Norðurlandi vestra - Feykir auglýsir eftir tilnefningum

Í fyrra kusu 1640 manns í kosningunni og varð niðurstaðan sú að Karólína í Hvammshlíð, hvunndagshetja og baráttukona, reyndist öruggur sigurvegari, fékk 47% atkvæða.
Í fyrra kusu 1640 manns í kosningunni og varð niðurstaðan sú að Karólína í Hvammshlíð, hvunndagshetja og baráttukona, reyndist öruggur sigurvegari, fékk 47% atkvæða.

Líkt og undanfarin ár leitar Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Karólína í Hvammshlíð var kjörin maður ársins fyrir árið 2023 en nú er komið að því að finna verðugan aðila til að taka við nafnbótinni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2024.

Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti föstudagskvöldið 13. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir