Lúsartilfelli í Árskóla

Lúsarnit

Nokkur lúsartilfelli hafa komið upp í Árskóla á Sauðárkróki en á heimasíðu skólans eru  foreldrar hvattir til að skoða vel í hár barna sinna a.m.k. næstu tvær vikurnar. 
Finnist lús eru beðið um að láta vita í skólann svo auðveldara sé að fylgjast með útbreiðslu óværunnar. Þá kemur fram að barn sem  greinist með lús ætti ekki að senda í skólann fyrr en það hefur fengið viðeigandi meðferð  þ.e. bera lúsameðal í hárið eða þvo með lúsasjampói.
Á heimasíðu Landlæknisembættisins má finna eftirfarandi upplýsingar um Höfuðlús:
 
Höfuðlúsin er lítið skorkvikindi sem hefur aðlagað sig manninum og lifir sníkjulífi í mannshári á höfði og nærist á því að sjúga blóð úr hársverðinum. Hún er ekki talin bera neina sjúkdóma og því skaðlaus hýslinum. Allir geta smitast en staðfest smit er algengast hjá 3-12 ára börnum. Höfuðlúsasmit er ekki talið bera vitni um sóðaskap.

Mikilvægt er að þeir sem greinast með höfuðlús eða forráðamenn þeirra bregðist strax við smitinu, með þeim aðferðum sem ráðlagðar eru hér á eftir, til að komið sé í veg fyrir dreifingu til annarra.
Frá árinu 1999 hefur höfuðlús verið skráningarskyldur sjúkdómur og safna Heilsugæslustöðvar, hver á sínu svæði, og skólahjúkrunarfræðingar upplýsingum um lúsasmit og senda til sóttvarnalæknis Landlæknisembættisins, einu sinni í mánuði. 
Almenningur er beðinn um að tilkynna um lúsasmit til sinnar Heilsugæslustöðvar
Lífsferill
 
Fullorðin höfuðlús er 2-3 millimetrar að stærð (svipað og sesamfræ), gráhvít eða ljósbrún á lit. Lífsferill hennar hefst í eggi sem kallað er nit. Á sex til tíu dögum klekst út úr nitinni, unglús (nymph), pínulítil, sem á 9-12 dögum þroskast yfir í fullorðna karl- eða kvenlús. Innan 24 klst. frá kynmökum, sem eiga sér stað í eitt skipti, byrjar kvenlúsin að verpa og festa nitina á hár og getur hún verpt allt að tíu eggjum á dag.

Lúsin hefur sex fætur og sérhannaðar klær til að komast um í hárinu og getur skriðið 6-30 sentimetra á mínútu. Hún getur ekki flogið, stokkið né synt. Lífslengd kven- og karlhöfuðlúsa er allt að 30 dagar en ef þær detta úr hárinu út í umhverfið fjærri hlýjum, rökum og blóðríkum hársverðinum, veslast þær upp og deyja á 15-20 klukkustundum.

 

Nit – lúsaregg
Egg lúsarinnar eru kölluð nit og getur hún verpt allt að tíu eggjum á dag. Hún „límir" þau við höfuðhár með sérstöku efni sem hún framleiðir, um 1 sm frá hársverði en til að þau klekjist út þarf hitinn að vera um 22 °C.

Nit er 0,8 mm löng og sést með berum augum og getur litið út eins og flasa en ólíkt flösu er hún föst í hárinu. Þegar nitin hefur klakist út sitja tóm egghylki áfram í hárinu og erfitt getur verið að sjá hvort þau eru full eða tóm en ef þau eru langt frá hársverðinum er líklegt að þau séu tóm eða lúsin í þeim dauð. Algengast er að finna nit í hárinu ofan við eyrun og við hárlínuna aftan á hnakkanum.

Ekki er hægt að smitast af lús með nitinni. Þó nit sé í hári er það ekki ótvírætt merki um lúsasmit.

Smitleiðir

Lúsin getur farið á milli hausa ef bein snerting verður frá hári til hárs í nægilega langan tíma til að hún geti skriðið á milli en hún getur hvorki stokkið, flogið né synt.
Höfuðlús sem fallið hefur út í umhverfi verður strax löskuð og veikburða og getur þ.a.l. ekki skriðið á annað höfuð og sest þar að. Þess vegna er talið að smit með fatnaði og innanstokksmunum sé afar ólíklegt en ekki er þó hægt að útiloka að greiður, burstar, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en einum innan stutts tíma, geti hugsanlega borið smit á milli.
Einkenni smits

Tveir af hverjum þremur sem smitaðir eru af höfuðlús hafa engin einkenni.
Einn af hverjum þremur fær kláða. Kláðinn stafar af ofnæmi, sem myndast með tímanum (frá nokkrum vikum að þremur mánuðum), gegn munnvatni lúsarinnar sem hún spýtir í hársvörðinn þegar hún sýgur blóð. Kláðinn getur orðið mikill og húðin roðnað og bólgnað þegar viðkomandi klórar sér og í einhverjum tilfellum geta komið sár sem geta sýkst af bakteríum.
Greining

Leita þarf að lús í höfuðhárinu með nákvæmri skoðun, en það er best gert með kembingu með lúsakambi yfir hvítum fleti eða spegli og hafa góða birtu.
Mörgum finnst þægilegra að kemba blautt hár sem í er hárnæring (sjá nánari lýsingu um kembingu) en öðrum finnst þægilegra að kemba hárið þurrt.
Finnist lús, jafnvel bara ein, er það merki um að viðkomandi er með höfuðlús og þarf meðferð með lúsadrepandi efni (sbr. leiðbeiningar).
Nit lítur í fljótu bragði út eins og flasa, en ólíkt flösu er hún föst við hárið og er helst að finna ofan við eyrun og við hárlínu aftan á hálsi.
Kembing í leit að höfuðlús í blautu hári 
Lúsakamba er hægt að kaupa í lyfjabúðum
 

Þvo hár með venjulegri aðferð, skola og setja venjulega hárnæringu sem höfð er áfram í hárinu og hárið haft blautt.
Greiða burtu allar flækjur - hárið er enn blautt.
Skipta frá greiðu/bursta yfir í lúsakamb og hafa undir hvítt blað eða spegil, til að auðveldara sé að sjá hvort lús fellur úr hárinu.
Skipta hárinu upp í minni svæði, til að auðvelda skoðun alls hársins.
 Draga kambinn frá hársverði að hárendum og endurtaka þar til farið hefur verið vandlega í gegnum allt höfuðhárið.
Eftir hverja stroku skal skoða hvort lús hefur komið í kambinn og þurrka úr með bréfþurrku áður en næsta stroka er gerð.
Nit lúsarinnar, sem líkist flösu í fljótu bragði en er föst við hárið, er oft að finna ofan við eyrun og við hárlínu aftan á hálsi. Nit ein og sér er ekki órækt merki um smit, sérstaklega ekki ef hún er langt frá hársverðinum því þá er lúsin í henni að öllum líkindum dauð.
Eftir kembingu alls hársins skal skola úr hárnæringuna.
Kemba aftur til að athuga hvort einhver lús hefur orðið eftir.
Þrífa kambinn með heitu sápuvatni og þurrka.
Lúsadrepandi efni sem seld eru í íslenskum lyfjaverslunum án lyfseðils eru:

Malathion húðlausn 5 mg/ml í ísóprópýl alkóhóli (Prioderm®)
Malathion hársápa 10 mg/ml (Prioderm®)
Permethrinum hársápa 10 mg/ml (Nix®)
Húðfleyti með Dísúlfram 2 g og bensýlbensoat 22,5 g í 100 g (Tenutex®)
Dímetíkon og Cýklómetíkon 5 (Hedrin lausn)
Meðferð við höfuðlús

Til að greina höfuðlús í hári þarf að kemba hárið með góðum lúsakambi. Einungis skal meðhöndla með lúsadrepandi efni þá sem hafa í hári sínu lifandi lús.

Ef lús finnst í hárinu er mælt með:

Að setja efni í hárið sem drepur lúsina og endurtaka þá meðferð þegar 7 dagar eru liðnir frá hinni fyrri. Mælt er með:

 

Nýlega er komið á markað nýtt sýlíkónefni með cýklómetíkon 5 (Hedrin) sem verkar með eðlisfræðilegu ferli við að eyða höfuðlús. Nægilegu magni er dreift í þurrt hár og á hársvörð og látið vera í hárinu í a.m.k. 8 klst. Þessi meðferð er endurtekin eftir 7 daga.
Fyrir heilbrigða einstaklinga frá 2 ára aldri sem hyggst nota malathion efni (Prioderm) er áhrifaríkast að nota alkóhóllausnir efnisins; setja þær í þurrt hárið og láta þorna eðlilega (ekki nota hárþurrku þar sem efnið er eldfimt) og vera í hárinu í 8-12 klst. Endurtaka þessa meðferð eftir 7 daga.
Fyrir einstaklinga með astma, exem, rofna húð og börn yngri en 2 ára sem hyggjast nota malathion efni (Prioderm) skal nota vatnslausn efnisins; setja í þurrt hárið og láta þorna og vera í hárinu í 12 klst. Endurtaka þessa meðferð eftir 7 daga.
Mikilvægt er að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum um notkun efnanna.
Fyrir barnshafandi konur og konur með börn á brjósti er Malathion í alkóhóllausn eða vatnslausn (Prioderm) talin örugg meðferð. Ekki er mælt með notkun Pemethrinum hársápu (Nix) hjá þessum hópi þar sem áhrif hennar hafa ekki verið rannsökuð.
 

Hafa í huga: að efni sem sett eru í blautt hárið og höfð í stuttan tíma (s.s. hársápur) hafa ekki reynst eins vel og geta frekar stuðlað að myndun ónæmis lúsarinnar gegn viðkomandi efni.

 

Samhliða skal kemba hárið með lúsakambi daginn eftir að lúsameðalið var sett í hárið og kemba síðan fjórum sinnum næstu tvær vikur.

Ef meðferð á að skila árangri og til að komið sé í veg fyrir endursmit, þarf að skoða aðra heimilismenn og nána vini (kemba með lúsakambi) til að kanna hvort að þeir eru einnig með lús. Ef lús finnst hjá þeim skal meðhöndla þá, alla samtímis, með lúsadrepandi efni og kembingu.

Aldrei má nota fyrirbyggjandi meðferð við höfuðlús þar sem það eykur líkur á myndun ónæmis fyrir lyfjunum.

Fylgjast þarf með hársverðinum eftir vel heppnaða meðferð – endursmit getur átt sér stað ef smitmiðillinn er ennþá í umhverfinu.

Ef kláði var til staðar fyrir meðferð getur tekið nokkurn tíma fyrir hann að hverfa. Áframhald kláða í einhvern tíma eftir meðferð þýðir ekki endilega að lúsin sé komin á ný. Ef kláðinn verður viðvarandi er mælt með að viðkomandi leiti læknis.
 

Höfuðlúsaeyðing með „náttúrulegum" efnum:

Rannsóknir hefa sýnt að jurtaseyði og ýmis gömul húsráð (s.s. að setja júgursmyrsli eða vaselín í hárið, majonesu, ólívuolíu, jurtaolíu o.s.frv.) drepa ekki höfuðlýs þó eitthvert gagn hafi reynst vera af Tea tree olíu.
Ekki er hægt að mæla með notkun ilmolíu í baráttunni við höfuðlús og líklegt ar að slíkt geri ekkert gagn - engar rannsóknir eru til að styðja notkun slíkra efna.

Aldrei skal setja í hárið eldfim efni og eitruð, s.s. bensín eða kerósón, né efni sem ætluð eru til nota á dýrum.

Ástæður fyrir að meðferð bregst og hvað skal þá gera?
Ef meðferð ber ekki árangur er líklegast að ekki hafi verið rétt staðið að henni s.s. að ekki hafi verið notað rétt efni, að ekki hafi verið notað nægilega mikið efni, að efnið hefi ekki verið haft nægilega lengi í hárinu eða að endursmit verði frá sýktum einstaklingum í umhverfinu s.s. fjölskyldumeðlimum eða nánum vinum.
Á Vesturlöndum hefur orðið vart ónæmis hjá höfuðlús fyrir öllum lúsalyfjum, einkum fyrir Permethrini. Við rannsóknir hefur komið í ljós að malathion í alkóhollausn sem sett er í þurrt hár og haft í hárinu í 8-12 klst. er árangursríkast og þar af leiðandi er mælt með notkun þess.
Til að minnka líkur á að lúsin myndi ónæmi gegn lúsalyfjum er afar mikilvægt að meðhöndla aðeins þá sem greinast með lús og fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum um notkun efnanna.
Ef lifandi lús er enn í hárinu eftir rétt framkvæmda meðferð getur hugsast að um ónæmi höfuðlúsarinnar gegn viðkomandi lúsalyfi sé að ræða. Í slíku tilfelli skal hefja aðra meðferð með annarri tegund höfuðlúsadrepandi efnis og fara nákvæmlega eftir notkunarleiðbeiningum.
Þrif í umhverfi
Ekki er þörf á sérstökum umhverfisþrifum til að ráða niðurlögum lúsasmits. Höfuðlýs í umhverfinu eru til lítils megnugar þegar þær eru ekki í hlýju höfuðhárs og með aðgang að mannsblóði og deyja á 15-20 klst., þ.e.a.s. innan sólarhrings.
 
Ef talin er þörf á, t.d. þar sem er sameiginleg greiða eða bursti, er rétt að þvo slík áhöld með heitu sápuvatni eða hella yfir það heitu vatni og láta standa í nokkrar mínútur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir