Listakot Dóru - Þemasýningin Óskasteinninn í Tindastól opnar 8. júlí
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
03.07.2023
kl. 08.20
Þemasýningin Óskasteinninn í Tindastól opnar 8. júlí klukkan 13.00. Sýningin verður til 7. september á opnunartíma gallerísins, sem er alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00.
14 listamenn sýna allskonar verk byggt á sögunni.Einnig verða til sölu handverk og listaverk úr grjóti þessa helgi. Klukkan tvö opnunardaginn verður söngatriði hjá spilaparinu Fúsi Ben og Vordísi. Kvenfélagið í Svínavatnshrepp selur kakó og vöfflur.
Listakot Dóru er tvo kílómetra frá þjóðvegi 1 inn í Vatnsdal að vestanverðu.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.