Launhelgi lyganna
Loðnan er undirstaða alls lífríkis sjávar við Ísland. Ef loðnan er drepin hrynja margir fiskistofnar eins og við höfum illilega orðið vitni af. Baráttan um ætið bitnar síðan með ógnarþunga á öllum sjófugli við Ísland sem að endingu rústar tegundunum.
Baráttan um ætið á ekki að standa á milli gráðugra grútarpramma-útgerða og alls lífríki sjávar við Ísland heldur á milli tegundanna. Loðnuveiðar ætti einungis að leyfa á vetrarvertíð til manneldis og hrognatöku.
Ekki ætti að vera heimilt að veiða loðnu austan línu sem dregin verði réttvísandi í suður frá Dyrhólaey og norðan línu sem dregin verði réttvísandi í vestur frá Garðskaga. Upphafskvóti ætti ekki að koma til greina fyrr en loðnan gengur vestur fyrir Dyrhólaey að undangengnum mælingum.
LÍÚ væddar loðnuveiðar eru glæpur gagnvart öllu lífríki hafsins og fólkinu í sjávarbyggðunum. Lífríki hafsins þarf nauðsynlega á loðnunni að halda en hún er ekki til handa gráðugum ofstækismönnum.
Eftir að farið var að veiða loðnu í gríðarlegu magni og þá einkum í flottroll hefur varla komið loðna inn á Breiðafjörð til hrygningar. Hún hefur einfaldlega verið drepin og torfunum splundrað.
Grænþörungur sem er aðalfæða hörpudisksins nærist aðallega á næringarsúpu úr rotnandi loðnu sem verður til við það er loðna hrygnir og deyr. Beint samhengi er á milli loðnuveiða og hruns hörpuskeljarstofnsins á Breiðafirði. Hörpudiskurinn hafði ekki rétta næringu og sýktist af þeim sökum og stofninn hrundi.
Hörpudiskurinn lifir á svifþörungum og smáum lífrænum ögnum sem berast með straumum nálægt sjávarbotninum. Hann heldur sig mest á hörðum botni á 15-80 m dýpi, einkum þar sem straumar bera að gnótt næringarefna.
Grænþörungar og plöntur geyma forðanæringu á formi sterkju í frumu-líffærum sem nefnast plastíð. Þetta eru einu hópar lífvera sem gera það.
Níels A. Ársælsson
Tálknafirði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.