Landsmót hestamanna degi fyrr

landsmot_hestamanna19. Landsmót hestamanna fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí á næsta ári. Sú breyting hefur orðið að mótið hefst degi fyrr en áður hefur tíðkast.

Töluverð umræða hefur verið um að dagskrá Landsmóts undanfarin ár hafi verið of þéttskipuð.  Á opnum fundi um Landsmót sem haldinn var í október 2008, stuttu eftir að síðasta Landsmóti lauk, voru fundarmenn almennt sammála að létta þyrfti á dagskránni og gera þyrfti ráð fyrir fleiri hléum og þá sérstaklega með helgardagskránna í huga.

Við mótun keppnis- og kynbótadagskrár á Vindheimamelum 2010 var sérstaklega litið til þessa þáttar.  Eftir mikla yfirlegu og vangaveltur hefur stjórn og framkvæmdanefnd Landsmóts ehf. nú samþykkt dagskrá næsta Landsmóts þar sem bryddað er uppá þeirri nýbreytni að hefja Landsmót á sunnudegi í stað mánudags eins og reyndin verið hefur undanfarin mót.  Með þessu telja mótshaldarar að létta megi helgardagskránna aðeins og lýkur mótinu t.a.m. nú klukkustund fyrr á sunnudegi miðað við dagskrá Landsmóts 2008.  

 Með því að gera sunnudag (27. júní) að upphafsdegi mótsins er ætlunin að byrja mótið á svo kölluðum æskulýðsdegi með forkeppni barna og unglinga ásamt skemmtilegheitum fyrir unga fólkið. Þá verði sérstakur knapafundur fyrir keppendur í þessum aldursflokki að morgni sunndags og að lokinni keppni þann dag er gert ráð fyrir léttri kvölddagskrá fyrir unga hestamenn.

Þess má jafnframt geta að við mótun dagskrár Landsmóts 2010 er ætlunin að kvölddagskráin verði meira hestatengd og að öll markaðssetning mótsins miði að því að koma þeim skilaboðum á framfæri að Landsmót er ekki almenn útihátíð heldur fjölskylduhátíð hestamanna.

Ýmsar upplýsingar og dagskrá Landsmótsins er hægt að nálgast á heimasíðunni  http://landsmot.is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir