Landbúnaðarháskóli Íslands tekinn við formennsku NOVA
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur tekið við formennsku NOVA University Network til næstu þriggja ára. Landbúnaðarháskóli Íslands tekur við af Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð (SLU) sem gegnt hefur formennsku á undanförnum árum.
NOVA University Network er samstarf norrænna háskóla á sviði landbúnaðar, dýralækninga, skógfræði og skyldra greina með áherslu á sameiginleg námskeið fyrir doktorsnema. Sjö norrænir háskólar standa að samstarfinu, auk LbhÍ og SLU í Svíþjóð eru það Lífvísindaháskólinn í Noregi (NMBU), Háskólinn í Helsinki, Háskólinn í Austur-Finnlandi (UEF), Kaupmannahafnarháskóli og Háskólinn í Árósum.
Stjórn NOVA, fulltrúar stjórnsýslu og nemenda frá samstarfsskólunum áttu tveggja daga vel heppnaðan fund á Hvanneyri í síðustu viku. Á fundinum tóku Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og Christian Schultze rannsókna- og alþjóðafulltrúi formlega við keflinu af Ylva Hilbur og Geir Löe frá SLU. Ylva og Geir voru þökkuð fyrir þeirra góða starf á undanförnum árum, en NOVA samstarfið hefur styrkst mjög undir þeirra stjórn. Farið var yfir stefnu NOVA og áherslur til næstu ára. Áfram verður lögð áhersla á samstarf um doktorsnámskeið og gæði námsins, fjölgun námskeiða og að námskeiðin séu auglýst með góðum fyrirvara. Þá var einnig rætt um matskerfið sem notað er til að fylgjast með gæðum NOVA námskeiða og hvernig megi bæta það enn frekar með aðstoð nemenda. Nemendur samstarfsháskólanna eru virkir þátttakendur í NOVA og fer Anna Mariager doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir nemendahópi NOVA.
NOVA var stofnað árið 1995. Aðildarháskólarnir vinna á sviði landbúnaðar, dýravísinda, skógræktar, dýralækninga, matvæla, umhverfisvísinda, fiskeldis og skyldra lífvísindagreina. Háskólarnir eiga það sameiginlegt að stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, þróun í matvælaframleiðslu, heilsu- og velferðarvernd manna og dýra og að efla getu til nýtingar lands, vatns, plantna og dýra samkvæmt sjálfbærum meginreglum.
NOVA er í góðu samstarfi við systursamtökin í baltnesku löndunum BOVA. BOVA leggur megináherslu á samstarf á sviði meistaranáms og geta framhaldsnemendur innan NOVA háskólanna sótt námskeið á þeirra vegum.
Upplýsingar um NOVA og þau námskeið sem eru á döfinni má finna á vefsíðunni: nova-university.org
/Fréttatilkynningar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.